Hleðsluþjónusta fyrir fyrirtækið

e1 sér um rekstur og greiðslumiðlun á öllum tegundum hleðslustöðva fyrir fyrirtæki. Fyrirtækið getur valið e1 sem sinn þjónustuaðila frá upphafi eða skipt yfir til e1 hvenær sem er eftir uppsetningu stöðva. Hjá e1 velja fyrirtæki sjálf tegund hleðslustöðva, rafverktaka og raforkusala og geta skipt hvenær sem er.

Einföld og hagkvæm hleðsluþjónusta

Að festa kaup á hleðslustöðvum fyrir fyrirtækið og setja þær upp er fjárfesting og við hjá e1 teljum að eftir uppsetningu eigi rekstur og greiðslumiðlun á þeim að vera hagkvæm.

Það er einfalt að bæta hleðslustöðvum fyrirtækisins í deilihagkerfi e1 og njóta þægindanna við að nota sama appið fyrir fyrirtækið og um allt land hvenær sem á þarf að halda.

checkmark
Ekkert stofngjald
checkmark
Enginn binditími samnings
checkmark
Fyrirtækið stýrir notkun hleðslustöðva
e1 App landing pagegradient background CTO app

Verð

Hægt er að tengja allar hleðslustöðvar fyrirtækisins inn í e1, bæði AC (hleðslur undir 22kW) og DC (hraðhleðslur yfir 50kW). Hægt er að haga aðgangsstýringu á stöðvarnar eins og hentar fyrirtækinu best, eftir því hvaða hópar (starfsfólk/gestir/almenningur) eigi að hafa aðgang að hvaða stöðvum í hleðsluneti fyrirtækisins, hvenær sólarhringsins og á hvaða verði.

AC stöðvar

DC stöðvar

990 kr. mán/tengi + vsk.
Opnar eða selur aðgang og aflar aukatekna fyrir fyrirtækið. Stýrður aðgangur fyrir starfsfólk og aðra hópa.
checkmark grey
Ótakmarkaður appaðgangur + lyklar
checkmark grey
Full stjórn á hleðslustöðvum á mínum síðum
checkmark grey
Fyrirtækið getur aflað tekna með því að selja aðgang til gesta/almennings
2.990 kr. mán/tengi + vsk
Opnar eða selur aðgang og aflar aukatekna fyrir fyrirtækið. Stýrður aðgangur fyrir starfsfólk og aðra hópa.
checkmark
Ótakmarkaður appaðgangur + lyklar
checkmark
Full stjórn á hleðslustöðvum á mínum síðum
checkmark
Fyrirtækið getur aflað tekna með því að selja aðgang
til gesta/almennings

Er fyrirtækið með rafbílaflota?

Skrá rafbílaflotanngradient background CTO app

Hvernig virkar ferlið hjá e1 fyrir fyrirtæki?

Ferlið hjá e1 virkar þannig að notendur fyrirtækisins stofna aðgang í e1 appinu. e1 tengir við stöðvar fyrirtækisins og opnar aðgang fyrir notendur. Fyrirtækið ákveður sjálft verð og aðgang fyrir sína hópa.

e1 safnar greiðslum frá notendum yfir hvern mánuð m.v. notkun og leggur veltuna inn á fyrirtækið í upphafi nýs tímabils. Þjónustugjald dregst sjálfvirkt af veltu í hverjum mánuði.

Algengar spurningar

Hvað kostar kWh hjá e1?

Hjá e1 ræður fyrirtækið verðinu sjálft. Hægt er að velja um verð á kWh, verð á mín. eða blanda bæði saman að vild og setja mismunandi verð á mismunandi tíma sólarhringsins. Flest fyrirtæki velja mismunandi verð á kWh (ef AC hleðslur) og/eða mín. (ef DC hraðhleðslur) fyrir mismunandi hópa.

Er hægt að aðgangsstýra hleðslustöðvum fyrirtækisins fyrir mismunandi hópa?

Já, það er hægt að setja upp eins marga hópa og fyrirtækið vill. Algengast er að fyrirtæki velji einn lokaðan hóp fyrir starfsfólk sem fær lægra verð.
Flest fyrirtæki vilja einnig hafa opinn aðgang fyrir gesti/almenning og þá oftast á örlítið hærra verði.

Hvort henta AC eða DC hleðslustöðvar fyrirtækinu betur?

Fyrirtækið getur valið að hafa ýmist AC eða DC hleðslustöðvar. Flest fyrirtæki setja upp AC stöðvar þar sem þær eru talsvert ódýrari í innkaupum og rekstri og henta betur fyrir lengri hleðslur, en DC fyrir hraðhleðslur og eru mun dýrari í innkaupum og rekstri. Sum fyrirtæki hafa bæði sett upp AC og DC stöðvar með aðgengi fyrir starfsfólk og viðskiptavini/almenning, en þau eru þá oftast einnig með talsvert stærri rafbíla í eigin rekstri.

Er hægt að setja mismunandi verð eftir tímum sólarhringsins?

Já, fyrirtæki geta sjálf ákveðið að hafa mismunandi verð eftir mismunandi tímum sólarhringsins og einnig mismunandi verð fyrir mismunandi hópa.

Fær fyrirtækið aðgang að mínum síðum?

Já, fyrirtækið fær aðgang að mínum síðum. Þar er hægt að skoða m.a. notkun eigin rafbílaflota og annarra sem fer í gegnum stöðvarnar og taka út skýrslur eftir þörfum.

Fær fyrirtækið lykla fyrir notendur?

Fyrirtækið getur fengið lykla eftir þörfum fyrir notendur. Getum keyrt þá út á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu eða sent með pósti.

Fleiri spurningar?

Hafðu sambandgradient background CTO app